
Horft á vefsjónvarp
Þú getur fylgst með fréttum og því nýjasta sem er að gerast í uppáhalds
sjónvarpsþáttunum þínum.
Veldu og vefsjónvarpsþjónustu.
Til að straumspila efni þarftu að nota 3G, 3.5G eða þráðlausa staðarnetstengingu.
Notkun vefsjónvarpsþjónustu getur falið í sér mikinn gagnaflutning. Upplýsingar um
gagnaflutningsgjöld fást hjá þjónustuveitunni.
Úrval af foruppsettum vefsjónvarpsþjónustum fer eftir landi og þjónustuveitu. Efni í
vefsjónvarpi getur verið mismunandi eftir þjónustuveitum.
1 Til að fletta um vefsjónvarpsefni skaltu strjúka yfir skjáinn.
2 Til að hefja spilun skaltu velja smámynd.
3 Til að sjá eða fela stýritakkana meðan á spilun stendur bankarðu í skjáinn.
4 Notaðu hljóðstyrkstakkana til að stilla hljóðstyrkinn.
Vefgræju fyrir sjónvarp bætt við heimaskjáinn
Smelltu í stutta stund á autt svæði á heimaskjánum, veldu
Bæta við græju
og
vefsjónvarpsþjónustu.
Finna fleiri vefsjónvarpsþjónustur
Veldu
Ná í meira
til að hlaða niður vefsjónvarpsþjónustu úr Nokia-versluninni. Sótt
þjónusta er vistuð í forritamöppunni en hægt er að færa hana í aðra möppu, t.d. í
sérstaka vefsjónvarpsmöppu.
Myndskeið og sjónvarp
65

Nánari upplýsingar um Nokia-verslunina má finna á www.nokia.com/support.