
Vista staðsetningargögn í myndum og myndskeiðum
Ef þú vilt vita nákvæmlega hvar einhver mynd eða eitthvert myndskeið voru tekin
geturðu stillt símann á að skrá staðsetninguna sjálfkrafa. Síðar geturðu skoðað
staðsetninguna á korti.
Velja skal >
Myndavél
.
Virkja skráningu staðsetningar
Veldu
>
Stillingar
>
Vista staðsetningu
>
Já
.
56
Myndavél

Það getur tekið nokkrar mínútur að fá staðsetningarhnitin. Staðsetning, byggingar,
náttúrulegar hindranir og veðurskilyrði geta haft áhrif á móttöku og gæði GPS-merkja.
Ef skrá sem inniheldur upplýsingar um staðsetningu er samnýtt eru
staðsetningarupplýsingarnar einnig samnýttar og þriðji aðili sem sér skrána kann að
sjá staðsetninguna. Þessi möguleiki krefst sérþjónustu.
Upplýsingar um staðsetningu:
— Upplýsingar um staðsetningu eru ekki í boði. Staðsetningargögn eru ef til vill
ekki vistuð í myndum eða myndskeiðum.
— Staðsetningarupplýsingar eru tiltækar. Staðsetningargögn eru vistuð í myndum
eða myndskeiðum.
Hægt er að tengja upplýsingar um staðsetningu við mynd eða myndskeið ef hægt er
að finna staðsetningu um símkerfi og GPS. Ef mynd eða myndskeið með
staðsetningarupplýsingum er samnýtt geta þeir sem skoða myndina eða myndskeiðið
e.t.v. séð upplýsingarnar. Hægt er að gera landmerki óvirk í stillingum
myndavélarinnar.