
Ábendingar um myndir og myndskeið
Haltu myndavélartakkanum inni.
Þegar mynd er tekin:
•
Nota skal báðar hendur til að halda myndavélinni kyrri.
•
Við aukinn aðdrátt getur dregið úr myndgæðum.
•
Myndavélin fer í orkusparnaðarstöðu ef hún er ekki notuð í u.þ.b. eina mínútu.
Ýttu á myndavélartakkann til að kveikja á myndavélinni.
•
Hægt er að bæta mynd við tengiliði á tengiliðalista. Eftir myndatöku velurðu táknið
>
Nota mynd
>
Setja við tengilið
. Færðu rammann til að skera myndina,
smelltu á skjáinn til að opna tækjastikuna, veldu og veldu svo tengiliðinn .
Halda skal öruggri fjarlægð þegar flassið er notað. Ekki má nota flassið á fólk eða dýr
sem eru mjög nálægt. Ekki má hylja flassið þegar mynd er tekin.
Þegar myndskeið er tekið upp:
Myndavél
57

•
Til að útkoman verði sem best er nauðsynlegt að loka öllum forritum.
•
Ef myndskeið er tekið upp á minniskort skaltu nota samhæft, hraðvirkt, hágæða
microSD-minniskort. Mælt er með að notuð séu microSD-minniskort í flokki 4
(32Mbit/s (4MB/s)) eða hærri flokki.
Fyrir fyrstu upptöku skaltu taka öryggisafrit af öllum mikilvægum gögnum sem
eru á kortinu og nota símann til að forsníða kortið, jafnvel þótt það hafi þegar
verið forsniðið eða notað í Nokia-síma. Þegar minniskort er forsniðið eyðileggjast
öll gögn sem eru á því.
Ef afkastageta kortsins minnkar með tímanum skaltu taka öryggisafrit af öllum
mikilvægum gögnum sem eru á kortinu og nota símann til að forsníða kortið.