Nokia X7 00 - Notkun símans án tengingar

background image

Notkun símans án tengingar
Á stöðum þar sem þú vilt ekki hringja eða svara símtölum geturðu samt opnað dagbók,

tengiliðalista og leiki án nettengingar ef þú virkjar ótengt snið. Slökktu á símanum

þegar notkun farsíma er bönnuð eða þar sem hún kann að valda truflunum eða hættu.

Ýttu á rofann og haltu honum inni

og veldu

Án tengingar

.

Þegar ótengda sniðið er virkt er lokað á tengingu þína við farsímakerfið. Lokað er á

allar sendingar útvarpsmerkja á milli símans og farsímakerfisins. Ef þú reynir að senda

skilaboð er það geymt í möppunni úthólf og er einungis sent þegar kveikt er á öðru

sniði.

Hægt er að nota símann án SIM-korts. Slökktu á símanum og fjarlægðu SIM-kortið.

Þegar kveikt er aftur á tækinu verður ótengt snið virkt.

Mikilvægt: Í ótengdu sniði er ekki hægt að hringja, svara símtölum eða nota aðra

valkosti þar sem þörf er á tengingu við farsímakerfi. Hugsanlega er hægt að hringja í

það neyðarnúmer sem er forritað í tækið. Eigi að hringja úr tækinu þarf fyrst að skipta

um snið.

Þegar þú ótengt snið er virkt er áfram hægt að nota þráðlaust staðarnet, t.d. til þess

að lesa tölvupóst eða vafra á netinu. Einnig er hægt að nota Bluetooth.

Mundu að fara að öllum viðeigandi öryggisreglum.